nörd.is

HulduPuldusíða :Þ

01.12.2008 02:53:16 / Hulda

Jólin komin hjá mér :D

Búin að jólaskreyta...

:d :d :d :d :d



» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 22:47:27 / Hulda

Allt á fullu

Jæja, haldiði ekki bara að ég hafi mætt í gömlu góðu ræktina í dag :d MJÖG stolt af mér sko :haha: Og nú SKAL ég sko halda áfram og vera dugleg að koma skrokknum í form, ég bara SKAL ;) Jájá, ég veit, þið hafið heyrt þetta áður og samt gerist aldrei neitt, heheh........ :p

Er annars á kafi í verkefnaskilum og prófundirbúningi, hef ekki einu sinni tíma til að hafa áhyggjur af krepputíðinni ;)

En ok, ætla aftur í bækurnar :s

Adios


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 22:26:05 / Hulda

Hellú again

Jæja, tapaði ég öllum fastagestunum mínum á þessu blogg-leti-tímabili mínu eða nennir bara engin að lesa í gegnum alla síðustu færslu..... :$ Amk ekki eitt einasta komment og ég sem sagði svooooo fyndna sögu af sjálfri mér :haha: Allavega, ef einhver er að lesa þetta, plííííííssss leyf mér að vita af þér, bara kannski öööörstutt hæ og bæ í commentin, aðeins svona til að minna mig á að ég er ekki gleymd þó ég hafi gleymt að blogga :lol:

Sit annars sveitt yfir heimaprófi í Tölfræði III, svaka gaman hjá mér :s Nei vitiði án gríns, ég hélt ekki að sú stund myndi nokkurn tímann koma að ég gæti sagst skemmta mér yfir tölfræði en vitiði, ég held barasta hreinlega að ég hafi loksins náð sáttum við hana, kannski orðið tímabært líka, hehe ;)

En ok, ætla að hafa þetta stutt núna,
Hilsen.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 14:02:17 / Hulda

Athyglisbrestur í hnotskurn hjá henni mér

VÁ, hvað það er orðið tímabært að setja hér inn nokkrar línur 8| vona bara að fólk sé ekki búið að gefast upp á að kíkja hingað :s:s:s

VARÐ bara hreinlega að setja hér inn smá dæmisögu frá sjálfri mér frá því í síðustu viku :p Þið ykkar sem ekki vitið hvað athyglisbrestur er, jah, þá held ég að þið getið ekki fengið betri innsýn inn í þennan annars oft vandræðalega sjúkdóm minn ;)

EN HÉR KEMUR
DÆMISAGAN

Ég sem sagt fór í síðustu viku til námsráðgjafa til að endurnýja samninginn minn um lengri próftíma þar sem ég er nú haldin þessum skemmtilega og stundum soldið þreytandi sjúkdómi, athyglisbrest með ofvirkni (AD/HD).


Allt gekk sinn eðlilega gang svo sem, ég kom að þjónustuborðinu og mér vísað til sætis nr. 2 í röðinni eftir að fá að tala við næsta lausa námsráðgjafa. Skömmu síðar kemur ung kona gangandi til mín, tekur í hendina á mér, kynnir sig (tek það fram), og bíður mér til sætis inni á skrifstofunni sinni. Við spjöllum soldið saman og hún reddar hlutunum fyrir mig og allt í gúddí bara, ætli ég sé ekki inni hjá henni í svona korter (tek það fram líka, ágætis tími alveg). Á þessum tíma skrifaði hún nafnið sitt á þrjú eins samningsblöð þar sem þetta þarf að fara í allar áttir, ma eitt eintak handa mér, en hvað um það. Ég þurfti svo að skrifa mitt nafn undir hennar og hún sem sagt skrifaði nafnið sitt alltaf á undan mér þannig að ég sá nafnið hennar þrisvar sinnum á blaði (tek það líka fram). Jæja, þegar allt er frágengið þá stend ég upp, þakka fyrir, tek aftur í hendina á henni og held mína leið.

Ég er ekki komin langt þegar ég skyndilega átta mig á því að ég er búin að tapa nýju fínu húfunni minni sem amma prjónaði á mig fyrir stuttu, mjög í uppáhaldi sko þessi húfa 8) Ég sný þá snarlega við og ráfa þarna milli stólanna þar sem ég sat og beið fyrir örstuttu síðan, en hvergi er húfan. Þá geng ég að þjónustuborðinu og ath hvort konan þar kannaðist nokkuð við húfu á stangli þarna, en hún hafði ekki fundið neina húfu. Hún fór þá að spyrja mig hjá hverri ég hefði verið-jamm gott fólk, og nú kemur miðpunktur sögunnar-ég hafði ekki hugmynd um svo mikið sem fyrsta stafinn í nafni þessarar annars ágætu konu (og rifjum upp, ég fékk alveg ágætlega mörg tækifæri til að setja það á skammtímaminnið) :$ Allavega, eina sem ég gat komið upp úr mér var bara:


    - "Ég veit það ekki"
(og brosti út í annað af sjálfri mér).

Konan á þjónustuborðinu  fletti þá í einhverjum pappírum hjá sér og spyr mig svo dálítið nákvæmar; hvort það gæti verið að hún héti X (man sko ekki hvaða nafn hún sagði...) og ég svaraði aftur um hæl:

    - "Ég veit það ekki"
(orðin pínu vandræðaleg þá) ;)

Aftur leggur konan á þjónustuborðinu þá fram spurningu, orðin soldið hissa á mér, og núna hvernig konan hafi litið út, og nú fór hún alveg með það, hvernig í ansk... átti ég að muna það!!! :s Ég gat því ekki sagt annað en bara:

    - "Ég veit það ekki"
(farið að líða frekar pínlega þarna á þessari stundu verð ég að segja)

Og aftur spurði hún mig á nákvæmari hátt, núna hvort ég myndi hvort það gæti verið að þessi kona væri ljóshærð/dökkhærð með stutt/sítt hár (man ekki hvort hún sagði ljóshærð eða dökkhærð, stutt eða sítt, skiptir ekki öllu...), og enn einu sinni neyðist ég til að svara hálf aumingjalega:

    - "Ég veit það ekki"
(shit hvað ég mér leið eins og hálfvita) :|

Konugreyið á þjónustuborðinu varð ekkert smá skrítin í framan, horfði á mig spurnaraugum og eitt sekúndubrot held ég að hún hafi hreinlega haldið að ég væri að grínast í sér ;) Svo var eins og henni féllust hendur, varð að einu stóru spurningamerki og spurði mig svo hvort ég hefði ekki verið inni hjá námsráðgjafanum bara núna rétt áðan?????!!!!! - "Jú" svaraði ég og reyndi að hlægja, heheh, stundi svo upp úr mér upphátt að kannski hafi ég gleymt henni einhvers staðar annars staðar.... missi svo út úr mér setningu sem alveg toppaði allt saman:

    - "Hvar var ég aftur áðan?!"

...og klóraði mér í hausnum, rámaði allt í einu í að hafa komið einhvers staðar við rétt áður en ég fór til námsráðgjafans, gat bara engan veginn komið fyrir mig hvar (og var í raun ekki alveg viss hvort....). Nú var konan orðlaus, sagði ekkert (enda kannski erfitt fyrir hana að svara því hvar ég hafi verið áður en ég kom þangað).

Nú fannst mér tími til kominn að fara að koma mér endanlega burt þaðan, svo ég reyndi að gubba því út úr mér á minn einskæra vandræðalega hátt að kannski hefði ég líka bara misst húfuna einhvers staðar á leiðinni... sagðist ætla að athuga málið bara betur - og kvaddi!

Ég þræddi nú gangana sömu leið og ég hafði komið (reyndar alveg merkilegt að ég skuli hafa munað leiðina til baka...) en hvergi var húfan. Þegar ég svo fór að nálgast ákveðna skrifstofu rann skyndilega upp fyrir mér ljós, AHA, nú mundi ég hvar ég hafði verið áðan! :haha: Ég hafði komið við á tiltekinni skrifstofu og sótt verkefni sem ég var að fá til baka! Og nú roðnaði ég fyrir sjálfri mér -svei mér þá- ... Hvernig í ósköpunum fór ég að því að gleyma þessari viðkomu, ég sem hafði varla horft fram fyrir mig alla leið til námsráðgjafans af því ég var svo mikið að skoða yfir verkefnið, hvað ég hefði gert rétt og hvað var sett út á...!!!


WHAAAAAAA.....  ÁN GRÍNS, ÉG ER FARIN AÐ KVÍÐA FYRIR ELLINNI, SVONA ÞEGAR ÉG FER AÐ KALKA!!!! ÉG MEINA ÞAÐ, HVERNIG VERÐ ÉG ÞÁ???

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 20:42:26 / Hulda

Það sem ég lendi ekki í... :/

:lol: Án gríns, ég held að gærkvöldið hafi toppað öll þau vandræðalegu atvik sem hafa hent mig í gegnum tíðina, og þau eru nú ófá eins og þið sem þekkið mig vitið :lol::lol::lol:

Ég tók vinnurútuna sem svo oft áður klukkan ellefu í gærkvöldi, tilbúin og full tilhlökkunar yfir að mæta galvösk á næturvaktina ;) Okei, svo sem ekki frásögu færandi, nema hvað, ég tek rútuna hér rétt fyrir utan heimilið mitt og halla mér oft upp að ljósastaur þar hjá til að styðja við lúna fætur :$ og reyni að næla mér í nokkra nikotínsmóka svona til að hafa eitthvað annað að gera en bora í nefið meðan ég bíð eftir að rútan renni í hlað (ekki það að ég sé vön að vera svo svakalega tímanlega að biðin sé vön að vera neitt óheyrilega löng :lol:).

Jæja, þarna stend ég upp við ljósastaurinn klukkan rétt að detta á ellefu á sunnudagskvöldi, með bakpokann hangandi á hægri öxlinni, sígarettu í annarri hendi og farsímann í hinni þar sem ég var önnum kafin við sms skeyti. Öðru hvoru lít ég upp frá símanum til að athuga hvort rútan sé í augsýn. Skyndilega heyri ég bílhljóð og lít þá ósjálfrátt í áttina til hans. Bíllinn tekur sveig upp að gangstéttinni hjá mér og stoppar, og ég reyni eftir fremsta megni að greina andlitin fyrir innan bílrúðurnar, hélt kannski að einhver vinnufélagi væri þar kominn til að bjóða mér far á vaktina ;). En þeim mun betur sem ég sé inn í bílinn, þeim mun meira hissa verð ég þar sem ég þekkti ekki eitt einasta af þeim þremur stráksandlitum sem þar voru. Ég bjóst þá við að þeir ætluðu sér að spyrja til vegar og fékk pínu ponsu kvíðahnút í magann þar sem ég er hræðilega léleg í því. Auk þess litu gaurarnir svolítið pólkskulega út þannig að ég var farin að búa mig undir vegaleiðbeiningar á ensku sem ég var ekki að sjá mig gera með góðum árangri :s

Ég hefði hins vegar ekki þurft að hafa neinar áhyggjur af þessu, því drengirnir höfðu allt annað í huga. Mér fannst líða Óralöng stund þar sem þeir bara voru stopp við gangstéttina, með tónlistina í botni, hlægjandi bak við lokaðar bílrúður og horfandi til mín til skiptis. Kræst hvað mér leið kjánalega, stóð þarna og horfði með spurnaraugum inn í bílinn 8| en flaug svo skyndilega sú neyðarlega tilhugsun í hug að ef til vill væru þeir að stoppa út af einhverju öðru eða öðrum en mér!!! 8| Ég bakkaði eitt-tvö skref og leit í kringum mig, en þar var enginn, ekki sála, svo mér varð aftur starsýnt inn í bílinn, enn stærra spurningarmerki en áður og óskaði þess svo heitt og innilega að rútufjandinn færi nú að koma:|

Og það var loksins þá sem þeir dröttuðust til að opna bílrúðuna, og spurðu mig á fremur bjagaðri íslensku hvað ég væri að bíða eftir eða eitthvað í þá áttina. Ég svaraði á íslensku að ég væri að fara að vinna upp í Norðurál en þeir skyldu ekki bofs svo ég reyndi að útskýra mál mitt með því að nefna Grundartanga en þeir héldu bara áfram að hlæja eitthvað og segja eitthvað sem ég skyldi ekki :s:s:lol: Ég sagði þá á ensku "I´m going to work, my bus is comming"!!!! Þeir eitthvað bara "okei" oþh og hlógu og sögðu eitthvað sem ég skyldi ekki og keyrðu svo í burtu, -hlægjandi-, og í því sé ég svo rútunni bregða fyrir hornið á landsbankaplaninu, uþb 15-20 sekúndna fjarlægð þannig að gaurarnir voru bak og burt þegar ég stíg inn í rútuna.

Eftir á að hyggja varð mér síðan hugsað til þess sem ég svaraði þeim, "...going to work... my bus is comming..." WHAT!!! :o Gat mér ekki dottið neitt annað í hug... Sko, að öllum líkindum stoppuðu þeir hjá mér í viðskiptaerindum, helv... durtarnir :s:^), og hvað geri ég!!! Í mínu einskæra sakleysi tala ég um ég sé að fara í vinnu (mjög easy að misskilja ef manni sýnist svo :() og segi svo my bus is comming, sko, ef þeir eru ekki mjög sleipir í ensku gætu þeir allt eins hafa skilið orðið bus sem bara hver annar bíll, hmmm... okei, ég er sem sagt að fara að vinna og bíð eftir bílnum mínum, einhver augljóslega búnað panta mig fyrir kvöldið..... 8| Svo er líka auðvelt að rugla saman orðunum bus og boss 8|:!: sem þó hafa gjörólíka meiningu, en hafi ég verið að bíða eftir bossinum mínum er í augum þessarra ungu sveina aðeins hægt að skilja það á einn hátt held ég.... :$:whut:

Bwwahahahahahahaaaaaa... :haha::haha::haha: Ég held ég verði ekki eldri... :lol: Freeekar misheppnað allt saman :lol::lol:

Eitt er að minnsta kosti á hreinu, að við þennan ljósastaur stend ég ALDREI framar, og ekki við neinn annan ljósastaur ef því er að skipta :þ Er að fara aftur á vakt í kvöld og er aðeins með í maganum um hvort þessi skríll láti sjá sig aftur á "horninu mínu" þegar ég bíð eftir rútunni 8| Grrrrr... þessir innflytjendur mættu helst byrja að pakka niður ekki seinna en NÚNA og koma sér aftur til sinna heima, í sína hórumenningu þar sem fátækt kvenfólk þarf að vinna fyrir sér á næstu götuhornum :^):frown::^)

:) Læt þetta nægja að sinni, Veriði sæl og njótið veðurblíðunnar :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 18:12:22 / Hulda

Hæ hó

Jæja, þá er maður búinn að standa í biðröðum við ýmsa hoppukastala og önnur skemmtitæki niðrá bryggju, kaupa candy floss, fá sér pulsu, kíkja upp í vinnu til mömmu og pabba þar sem grislingarnir fengu heitt kakó og kandís :þ Og labba heim aftur - ó já, míns labbaði sko, en ekki hvað 8). Er nú orðin pínu lúin sko, verð nú að viðurkenna það :$

Var annars tekin af löggunni um daginn -DEM- #$#$%$#"/&%$#% Var bara í sakleysi mínu að taka fram úr hér innan bæjar 8|, einhver bíldrusla að dóla á fjörutíu og ég orðin of sein á kvöldvakt :evil: er þá ekki löggan þarna álengdar að leika sér með þetta nýja ljóta hraðamælingartæki sitt, ansk.... :evil: mældist á 70 km hraða sem gera svo mikið sem 15þús kall, eða sko "bara" 11.250 ef ég borga nógu snemma... :$ Án gríns, ég held mig langi frekar til að kveikja í peningunum heldur en borga þessa ljótu sekt :( En hvort sem þið trúið því eður ei, þá var þetta fyrsta og eina hraðasektin mín til þessa, eftir að hafa verið með bílpróf í tæp 13 ár ;)

Krakkarnir að fara að gista hjá ömmu sinni og afa í nótt, bara svona ganni :d gömlu hjónunum var líklega eitthvað farið að leiðast, hehe :haha: Og Gísli farinn til Rkv í aukavinnuna sína að þjóna, og ekki væntanlegur fyrr en einhvern tímann í nótt :( Þannig að ég verð hér bara alein heima og einmana :cry:

Veit ekki hvort ég á nokkuð að tala um palestínsku konurnar og börnin þeirra hér, búin að eiga svo margar ansi heitar rökræður um þetta málefni að ég er eiginlega komin með leið á því ;) Er amk EKKI sátt við bæjarstjórnina, eigum við ekki bara að orða það þannig 8)

Jæja, læt þetta duga í bili,
Seja

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 23:11:20 / Hulda

Nóg að gera :)

Jæja, míns með soldið stórt heimili þessa dagana, hvorki meira né minna en sjö manns 8| Er nebbla með tvo auka gutta því strákarnir hennar Sigrúnar systur eru hér hjá okkur og verða út næstu viku :) :) Þannig að maður deyr amk ekki úr aðgerðaleysi, svo mikið er víst 8) Annars er þetta nú búið að ganga ótrúlega vel fyrir sig, allir voða stilltir og góðir og og búið að vera bara mjög skemmtilegt :haha: Algjört ævintýri fyrir krakkana að sjálfsögðu, þau eiga örugglega eftir að muna þessar tvær vikur úr lífi sínu það sem eftir er, og rifja upp með bros á vör um ókomin ár :)

Skautaferð í Egilshöllina fram undan á sunnudaginn með allt liðið, held það verði nú þokkalegt fjör og mikið stuð 8) Eins gott að eiga sjö manna bíl á svona tímum... :þ

Annars lítið annað að frétta annað en vinnan og fjölskyldan, kláraði prófin með glæsibrag-eða, ég vona það allavega, á að vísu eftir að fá einkunnirnar en held samt að þetta hafi gengið rosa vel bara þrátt fyrir veikindin mín ;)

Jamm jamm, ætla að fara að reka unglingana á heimilinu í háttinn áður en þeir drepa hvorn annan úr svefngalsa :lol:

Kveð að sinni...




» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 21:37:53 / Hulda

Ég á svo bágt... :*(

Ojbara, ekki nóg með að sitja sveitt fyrir próf í leiðinlegasta kúrsi í heimi, heldur þurfti ég að næla mér í flensu með því..... :cry:

Kvef með ágerandi hósta, Brjálaður hausverkur (sem er það versta af öllu), Hiti, og Hálbólga :frown: Ég vorkenni mér SVOOOO MIKIР *snökt* :cry::cry::cry:

Held mér uppistandandi á verkjatöflum sem eru samt ekki að virka nema til hálfs :evil: Nenni bara engan vegin að fara að taka sjúkrapróf í þessu, vill ljúka þessu drasli af :s

Wish me luck

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 12:00:56 / Hulda

Gott veður og KÖNGULÆR :o

Akkurat þessa stundina langar mig í frost og ís-jökul-kalt veður aftur, takk fyrir takk :s Var að sjá fyrstu köngulóna þetta sumarið og mér líður EKKI vel með það :( Sá hana sko á veggnum hér úti fyrr í morgun, lítil og brún og ÓGEÐSLEGA LJÓT 8|:s Fór síðan út í sígó núna áðan og mér til mikillar skelfingar þá var hún horfin :| Nógu slæmt var að hafa hana þarna á veggnum, en það er samt þúsund sinnum verra að vita ekkert um hana, hún gæti þess vegna verið að skríða upp á mann eða eitthvað... :o

Leitaði og leitaði alls staðar hér fyrir utan hjá mér en fann hana hvergi, bara endalausar ofsjónir af svörtum deplum á hreyfingu sem gerðu mig bara hræddari og hræddari :$ Hemmm... maðurinn hér á móti var eitthvað að bardúsa fyrir utan hjá sér og hann heldur líklegast að ég sé endanlega orðin snar, ráfandi fram og til baka á stéttinni hjá mér og upp og niður tröppurnar í stöðugri viðbragðsstöðu og reglulegum taugakippum þar sem mér fannst helv... köngulóarkvikindið alltaf vera að koma aftan að mér ***hrollur***.

En jæja, þeim mun meir sem ég leitaði og fann ekki svo mikið sem ekki neitt, þeim mun smeikari varð ég um að ungfrú hraðskreið hefði kannski laumast inn til mín, um það vildi ég ekki hugsa til enda... :s Eftir að hafa skimast þarna vel og vandlega í alla króka og kima í uþb 20-30 mínútur gafst ég upp, krosslagði fingurna og vonaði að hún hefði bara farið á ókunnar slóðir einhvers staðar laaaangt langt í burtu ;) Hafði nú samt vökul augu þegar ég gekk inn, svona til vonar og vara EF ske kynni að ljóta áttfætlan hefði stolist inn 8|

OG HVAÐ HALDIÐI!!! 8| Ég var rétt komin inn um dyrnar þegar ég sé litla og ljóta og loðna kvikindið hlaupa til og frá á milli "felustaða" á sínum ógeðfeldu átta fótum, ég þori samt að veðja að ég var þúsund sinnum hræddari en hún :o:s Úff, og ég alein heima og ekki von á neinni björgun 8|

Var að spá í að hringja í múttu og fá hana til að fjarlægja óboðna gestinn þegar ég fattaði ryksuguna. Upp hófst soldill eltingaleikur þar sem litla ljót var alltaf að fela sig bak við flíspeysu sem lá á gólfinu og peysan var alltaf að festast í ryksugunni :|

Eeeen ég náði henni að lokum, Guði sé lof, er nú samt með ryksuguna í gangi ennþá sko, ehemmm.... :| Ætla að vera milljón trilljón prósent viss um að kvikindið komist alla leið upp ryksugustútinn og sé byrjað að rotna í helvíti áður en hún fær tækifæri á að skríða út aftur :s:s:s

Varð bara að deila þessu með ykkur, og btw, ég er heil á húfi, nema kannski með soldið háann blóðþrýsting ennþá, og non-stop kláðatilfinningu eins og það séu pöddur að skríða út um allan líkamann á mér.... :$ Er samt öll að ná mér niður held ég :p:haha::lol:



» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 15:38:49 / Hulda

Loksins, loksins, færsla...

Vá hvað ég hef verið löt að skrifa hingað inn undanfarið... :$ Orðin freeekar úrelt síðasta færsla til dæmis :s

Annars voða lítið að frétta svo sem, er búin að vera nær eingöngu á næturvöktum síðustu mánuði frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna, orðin svona pínu leið á þessu vampírulífi verð ég að viðurkenna, sérstaklega svona með hækkandi sól :| Þess á milli reyni ég svo að setjast við skólabækurnar, sinna heimilinu, uppfylla öll skilyrði móðurhlutverksins, hugsa um kallinn og láta hann hugsa um mig :p ... og svona ef tími leyfir þá reyni ég kannski að hvíla mig svolítið 8)8) Er svo að fara til einkaþjálfara fljótlega til að koma mér almennilega af stað í ræktinni, bara svona af því mig vantar að fylla upp í sólahringinn hjá mér, eins gott að verða ekki aðgerðalaus :lol: Er sem sagt stöðugt í þessu "ofur-konu" kapphlaupi með kynsystrum mínum, veit ekki hvenær ég fæst til að viðurkenna að slík kona er ekki til ;) Shit hvað maður á eftir að vakna upp einn daginn algerlega útbrunnin langt fyrir aldur fram 8|

Verð að nota tækifærið og lýsa yfir fullum stuðningi mínum til vörubílstjóranna í mótmælaaðgerðum sínum, og bara allra sem þar hafa komið nærri, LOKSINS tók einhver af skarið, barði í borðið og sagði hingað og ekki lengra, það breytist varla mikið bara við að bölsótast yfir hlutunum með næsta manni einhvers staðar úti í horni :)

Jæja, ætla að kíkja soldið í skólabækurnar áður en ég sæki Birgittu Nótt í leikskólann, fer svo á vakt aftur í nótt 8)

Hafið það gott :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 23:40:43 / Hulda

Íslenska Eurovision

Míns EKKI sátt við úrslitin í kvöld, hef ekki trú á því að komast upp úr undankeppninni með þetta :frown: Fínt lag svo sem og Regína nottla með geggjaða rödd og allt það (ætla ekki að hafa þetta of neikvætt hér þannig að ég sleppi öllum skoðunum mínum á Ómari sem söngvara ;) ) EN held þetta lag sé aðeins of klassískt til að virka í Eurovision. Að vísu eru þarna fáklæddar djarfar ungar stúlkur með kröftugan dans sem hefur mikið að segja þegar á hólminn er komið :$

Hefði viljað sjá Hó-hó lagið :haha: ok, kannski margur Íslendingurinn kominn með leið á því eftir soooldið mikla spilun, en athugum það að í útlöndunum hefur það ekki hljómað eins oft og margur fær að heyra framlag Íslands í fyrsta skipti rétt áður en þeir kjósa... Þar með mikið atriði að fara út með grípandi lag og sviðsframkomu, eitthvað sem situr eftir í minninu á fólki þegar það situr með símann í hendinni og ætlar að kjósa, eftir að hafa hlustað á heil 19 lög í einni röð. Líka grönn sæt söngkona (sem vantar að vísu soldinn kraft í röddina) og nokkrir vöðvastæltir strákar berir að ofan.... ef eitthvað hefði virkað þá er það þetta...

Dr. Spock fannst mér líka alveg vera að gera sig, hefði verið jafn sátt við að fá það út líka, grípandi, öðruvísi, fyndið og frumlegt í alla staði, pottþétt eitthvað sem fólk man eftir þegar það fer að kjósa... Bara spurning hvort Serbar tækju þessu sem heiður eða sem grín að sér að syngja á serbnesku :$

Annars allt gott að frétta, bara búnað vera á stanslausum næturvöktum og eitthvað að reyna við skólabækurnar í frítímanum, ekkert verið allt of mikill tími reyndar :s Var svo að fatta það í dag seinnipartin að míns er að fara í hlutapróf á þriðjudaginn... :| JjjjjjJJJJJææææds, og samt á næturvöktum frá sunnudagskvöldi til föstudagsmorguns :s:s:s Hélt að næsta hlutapróf væri ekki fyrr en eftir svona tvær vikur eða eitthvað en þá er sko eitt próf á viku næstu þrjár vikur Takk fyrir Takk!!! Úfff hvað það er ekki gaman að hrökkva upp við svona.... EEn gott að ég fattaði þetta samt í tíma (þó knappur sé), hefði alveg verið líkt mér að ranka ekki við mér fyrr en daginn eftir prófið sem hefði verið algjör bömmer :p

En jammm,,, orðin ágætis ritgerð held ég bara, búnað bæta upp slök skrif undanfarið og vel það vona ég :p:haha::p8):p

Set svo bara fingur og tær í kross og öskra:
"ÁFRAM ÍSLAND!!!"

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 16:34:01 / Hulda

Á lífi....

Okei folks, jólin eru víst LÖÖÖÖngu búin, kannski rétt að koma með nýja færslu eða hvað... :lol:

Svo sem ekki mikið né merkilegt að frétta héðan... :$

Fór ekki í fullan skóla núna eftir áramótin, bara 2 kúrsa sem ég hef tekið áður en vil gera betur, klára með hærri einkunn... ;) Þannig að ég þarf ekkert að sitja fyrirlestrana og er því að vinna 100% með, helst 150% til að koma fjármálunum í samt lag aftur... :S Æ, samt mjööög nice, í fullri vinnu og mér finnst ég vera í fríi, get lagt mig fyrir og eftir næturvaktir, og bara komið heim af vakt og ekkert stress með að setjast sveitt yfir bækur og verkefni :haha::haha::haha: Algjört letilíf ;)

Litla stelpan mín varð 4 ára í gær, svo fljótt að líða, er að upplifa tímamót sem ég hef ekki gert í um 12 ár, að vera hvorki ólétt eða með ungabarn á arminum, né með lítinn sætann óvita sem þarf að fylgjast með í hvert fótmál...:haha: Yngsti gimsteinninn orðin það sjálfstæð og hin tvö að verða fullorðin....8|

Langar svo á skíði, akkuru eru allir sem ég þekki svona miklir íþróttanördar :evil::evil: Minney, við áttum nú frækna skíðaferð hér forðum :lol::lol::lol: Prufa snjóbretti núna... :haha: bwwaaahahahaha.... Aldrei að vita nema draumaprinsinn stoppi í þetta sinn hehe 8):haha:

Jæja, bið að heilsa í bili 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 00:19:39 / Hulda

GLEÐILEG JÓL :D

---- GLEÐILEG JÓL ALLIR ----


Búið að vera yndislegt hér, fékk vægast sagt guðdómlega máltíð á aðfangadagskvöld sem hann elskulegi Gísli minn matreiddi eins og vaninn er :P

Allaf jafn skemmtilegt líka að fylgjast með grísunum opna pakkana sína hvern á fætur öðrum - Alls tekið utan af 61 pakka hvorki meira né minna, ágætis verk það enda flestir búnir að fá nóg undir lokin.

Jólaveisla í dag og Matarveisla á morgun, Næturvaktir næstu daga, Jólaball á laugardaginn..... Nóóóg að gera og bara gaman að því.

Eigum 11 ára afmæli í dag -eða gær kannski réttara sagt- (Jóladag) við Gísli, að hugsa sér að heil 11 ár séu liðin frá við tókum endanlega saman:o, tæp 12 ár síðan við vorum að dúlla okkur þessar þrjár vikur á sínum tíma og fatta svo eftir á að ég var ólétt 8|, ágætis afrek held ég bara :haha::haha::haha:.

Spurning hvort þetta verði síðasta bloggfærslan á þessu ári....

Þið ykkar sem ekki hafið fengið jólakort frá mér, ekki örvænta, er soldið sein í þessu þetta árið vegna tímaskorts, verðið að afsaka, kortið mun birtast von bráðar 8)

Bið að heilsa í bili, hafið það gott 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 08:56:01 / Hulda

Áds hvað þessi börn eru hreinskilin.... :o

Bwwwaaaahahahahahahahahah..... :lol::lol::lol::haha::haha::haha:

VERÐ bókstaflega að henda þessu hingað inn :lol:

Sko, hvað haldiði að hún Tinna Von hafi sagt við hana múttu sína í morgun þegarég var að koma þeim í skólann og sonna!!!!! "Mamma, stundum ertu í framan eins og þú sért norn eða eitthvað...!!!"  :$

WHAT!!! Okei, er að fara í próf í dag og búnað vera á kafi í verkefnavinnu oþh undanfarið þannig að ég er ósofin, með hálf skorpnaðar málningaleifar framan í mér ennþá, trilljón bólur á enninu eftir óreglulegan svefn og álag (sem ég btw fel með derhúfu þegar ég fer út), og úfið hár sem einhvern veginn stendur út í loftið upp úr ógislega skæs hárbandi, EN, wtf EINS OG NORN 8| Það er sko ekkert verið að skafa ofan af því neitt :S 

Snilld þessi börn :haha:

Og svo er fólk að furða sig á því hvernig ég nenni að mála mig á hverjum degi áður en ég stíg fæti út úr húsi ;)  NÚNA VITIÐI AF HVERJU :lol:

---- Farin að lesa betur undir prófið ----

Kveðja, Nornin 


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 22:18:47 / Hulda

Í góðum gír

Sjæsinn að ég komist yfir allt sem ég stefni á að klára yfir helgina :S:S:S Verð samt að gera það... ;)

Sælt veri fólkið annars :) Bara að henda hér inn örfáum línum, svona bara til að segja "hæ, ég er á lífi" 8) Ekkert að frétta samt, bara rok og leiðindaveður og ég á kafi í skólaverkefnum :$ Fór á tónleika í dag að sjá hann Marinó minn spila á píanó, æðislegt hjá honum :D Gerði mig að ennþá stoltari mömmu 8) Tinna að byrja að læra á blokkflautu í næstu viku og vægast sagt mikil tilhlökkun með það hjá minni ;):haha:

Fyndið, ef maður hefur ekkert að segja þá fer maður bara í það að tala um börnin sín, hehe :haha::haha::P

Jammm, og talandi um það, haldiði ekki bara að míns sé búnað taka átak á barnalandssíðunni, heldur betur, milljón trilljón nýjar myndir og vefdagbókin og bara alle sammen, endilega kíkið þangað og kvittið, þið sem ekki hafið lykilorðið biðjið bara um það gegnum e-mail, no prob sko ;)

Farin að læra.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 48832
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox

Klukkan